Sjálfstætt fólk

Halldór Laxness

525 pages, Hardcover

ISBN: 9979200383

ISBN13:

Language: Icelandic

Publish: None

Tags:

Sjálfstætt fólk er saga einyrkjans Bjarts í Sumarhúsum og veitir einstæða innsýn í líf íslensku þjóðarinnar á fyrri hluta aldarinnar. Þegar sagan kom fyrst út var hún glóandi innlegg í stjórnmálabaráttu samtímans og mjög umdeild, en telst nú til mestu dýrgripa í menningarsögu Íslendinga.
Til að halda sjálfstæði sínu berst Bjartur í Sumarhúsum harðri baráttu við sjálfan sig, fjölskyldu sína, valdhafana og jafnvel höfuðskepnurnar. Í bókinni eru þessi ályktunarorð dregin af lífsstríði hans: „Sagan af Bjarti í Sumarhúsum er saga mannsins, sem sáði í akur óvinar sins alt sitt líf, dag og nótt. Slík er saga sjálfstæðasta mannsins í landinu.“

Sjálfstætt fólk er í hópi vinsælustu skáldverka Halldórs Laxness og var kosin besta skáldsaga aldarinnar árið 1999. Sagan kom fyrst út á árunum 1934-35, í tveimur hlutum.

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *